Er raki eða mygla á heimilinu?
Sérfræðingar MT Ísland mæta á staðinn með hitamyndavélar og taka sýni, finna upptök vandans og segja þér hvað þarf að gera.
Kannastu við eitthvað af þessu?
- Fúkka- eða myglulykt sem fer ekki
- Raki, blettir eða móða á veggjum, lofti eða gluggum
- Málning eða veggfóður sem flagnar eða bólgnar
- Leki, vatnstjón eða grunur um falinn leka
- Óþægindi, höfuðverkur eða öndunarfæraeinkenni heima fyrir
- Þú ert að kaupa eða selja eign og vilt vita ástandið
Hvað er innifalið í skoðuninni?
Við notum sama tækjabúnað og verkferla og í stærri tjónaverkefnum okkar.
Hitamyndavélar
Sýnir kuldabrýr, rakasvæði og falinn leka í veggjum, gólfum og lofti án þess að rífa neitt.
Rakamælingar
Mælum raka í byggingarefnum og lofti til að staðfesta hvar raki er og hversu mikill hann er.
Sýnataka innifalin
Við tökum sýni til að greina hvort mygla sé til staðar. Sýnatakan er innifalin í verðinu.
Niðurstöður og ráðgjöf
Þú færð skýra mynd af ástandinu og ráðleggingar um næstu skref, á mannamáli.
Einföld og gagnsæ verðlagning
Skoðunin hentar sérstaklega vel fyrir einbýli, raðhús, parhús og íbúðir, en hún stendur öllum til boða, líka fyrirtækjum og húsfélögum.
MT Ísland hefur unnið við raka- og mygluvandamál frá árinu 2019 og byggir á yfir 30 ára reynslu danska móðurfélagsins Midtfyns Totalservice. Iðnaðarmenn okkar eru með sveinspróf eða meistararéttindi.
Ástandsskoðun
- Allt að 2 klst. skoðun á staðnum
- Hitamyndavélar og rakamælingar
- Sýnataka vegna myglu
- Ráðgjöf um úrbætur
- Sérfræðingur í raka og myglu
Allt ofangreint er innifalið í verðinu.
Þrjú einföld skref
Þú bókar
Fylltu út formið hér að neðan eða hringdu í 862-6310.
Við höfum samband
Við hringjum til baka og finnum tíma sem hentar þér.
Við skoðum
Sérfræðingur mætir með tækin, skoðar eignina og fer yfir niðurstöðurnar með þér.
Fáðu sérfræðing heim
Sendu okkur línu og við höfum samband fljótlega til að finna tíma. Þú getur líka hringt beint.
- 862-6310
- mtisland@mtisland.is
- Turnahvarf 6S, 203 Kópavogur
